Do you want to be my Emily ?

Image of the invisible

02.08.2007 17:54:15 / hlynurhot

...

Haha talandi um aumingja.. hringdu med rettu nafni og segdu thad sem thu aetlar ad gera.. fadu svo badar eda allar hlidar a sogunum og akveddu sidan hvad thu gerir.. skiladu mer svo tjaldinu krakki..

» 11 hafa sagt sína skoðun

14.07.2007 16:03:04 / hlynurhot

!!!!!YAY!!!!!!

Bjarni er kominn heim!!! hann sagdi engum fra thvi heldur bara kom.. djofull bra mer thegar eg kom fram med handklaedid utan um mig og sa hann bara standa tharna.. Velkominn heim elskan. Thu ert ekkert ad fara hedan aftur nema med mer =)


» 0 hafa sagt sína skoðun

03.07.2007 13:10:51 / hlynurhot

Bjarni að elda í kanada

Vildi bara henda inn þessari mynd af Bjarna í kanada... Drífðu þig heim =(

systur mínar eru með minna hár en þú =P


» 0 hafa sagt sína skoðun

26.06.2007 21:24:19 / hlynurhot

Vængbrotinn

Alveg hvað maður er vængbrotinn þegar  maður kemst ekki á netið! Allavegana þá er hrun á tölvunni minni sem aftrar mér að komast hingað oftar eins og kanski sést á hversu oft ég er búinn að vera að blogga.

Nýlega er ég kominn með hundaveikina.. miðað við hversu mikið ég hataði kubb þegar hann kom hingað fyrst þá er ég búinn að læra að elska þetta littla fífl =) í öðrum fréttum þá er ég hættur við að fara á hróaskeldu heldur fer ég að veiða núna bráðlega með honum Daða kallinum.

Er eiginlega með þokkalega ritstíflu loksins þegar ég sest fyrir framan skjáinn en sit hérna og vonast eftir einhverri hugljómun..

Reyni kanski bara aftur síðar.. þarf að fara að færa gula hondu civic =S

Lagið: Linkin Park - What ive done.


» 2 hafa sagt sína skoðun

11.05.2007 15:11:58 / hlynurhot

eurovision og kostningar

Jæja gott fólk.. ekki komumst við úr undankeppninni í evróvisjón. Skemtilegt að sjá allar austur evrópsku þjóðirnar sem komust áfram.. hmm kanski kunna þeir að kjósa landa sína annað en við hérn vestan megin. Gott lag og góð frammistaða hjá eika kallinum og hann fær klapp fyrir það..

Laugardaginn er svo gengið til kostninga.. hvað finnst ykkur um það? Ég er allavegana með það á hreinu hvern ég mun kjósa og verður magga ánægð með valið mitt =) og ég líka auðvitað.

Eurovision teiti? er það eitthvað oná brauð? Hver man ekki eftir hárinu á Bjarna í fyrra =P

 Lagið: Israelska eurovisionsveitin - Push the button


» 9 hafa sagt sína skoðun

27.04.2007 16:15:45 / hlynurhot

R.I.P. Óliver

í gær 26. apríl 2007 var keyrt á hann óliver okkar og slasaðist hann svo mikið að þurfti að lóga honum.. Fór ekki mikið fyrir honum en það er greinilegt að það vantar eitthvað á heimilið.. Ótrúlegt hvað svona lítil vera getur verið í stóru hlutverki fyrir fólki.

Þín verður sárt saknað óli minn :cry: vona að þú hafir fengið góðann stað á himnum.

Lagið: Eric Clapton - Tears in heaven


» 2 hafa sagt sína skoðun

23.04.2007 19:27:13 / hlynurhot

Hvað er að ?

Jæja. Nú kemur það sem ég er búinn að ætla mér að skrifa í langan tíma =)

Við, íslendingar, erum vangefin þjóð! Við mótmælum að fólk úr klámiðnaðinum komi hér til lands og haldi partý og kynnist landinu en við leyfum vændi.. Ekki nóg með það að að við gerðum þetta, þá bendi ég á það að kaupa vændi er samt enþá ólöglegt. Lögin eru ekkert í samhengi.

Og ef farið er úti í lög þá skal ég tala um dóma. Maður svíkur skatt í hálft ár og fær 7 ára fangelsi en annar misnotar 5 ára barn og fær 1 og hálft kanski 2 ef það var "alvarlegt". Eru þessir glæpir ekki nógu alvarlegir einir og sér? Ríkið nær sér eftir þennan mann sem sveik skatt en er tryggt að manneskjan sem verður fyrir misnotkun nái sér ?

Argh fokk it ég ætla að róa mig niður og kanski blogga aftur.

Lagið: Gym Class Heroes - Cupids Chokehold


» 0 hafa sagt sína skoðun

19.04.2007 19:27:51 / hlynurhot

Barabamms.. og svo framvegis.

Jæja gleðilegt sumar gott fólk.. og þið hin líka =) fínasta veður í dag og fínt að vera í fríi í dag frá vinnu og slappa af. Ætla ekki að hafa þetta neitt voða langt.

Jet Black Joe á laugardaginn.. Hver ætlar að fara?

Lagið: Jimmy Eat World - My Sundown


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.04.2007 14:36:06 / hlynurhot

Fucking fuck fuck!

Fucking fuck fuck sagði fucking fuckið þegar hann fucking fuckaði sér til fucking helvítis.

Hef ekkert meira að segja í dag. Ömurlegur dagur!

Lagið: 30 Seconds To Mars - Beautiful Lie


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 16:10:02 / hlynurhot

Bdsm = BrauðDeig smá myglað

Var að koma úr sturtu, langur vinnudagur í dag og síminn dauður. Það sem ég sé pottþétt þegar ég næ að kveikja á honum aftur er reiðis sms frá xyzu því ég er ekki með kveikt á símanum =P

Dagurinn í dag verður afslappaður en tölum aðeins um páskafríið, þar sem ég fékk 3 páskaegg =D sem er alltof mikið fyrir mig þannig xyza hjálpar mér.

Fórum í mat til ömmu, ég, xyza, mamma og Hulda og ekki er hægt að segja að konan sé léleg í eldhúsinu! Ég lá afvelta eftir matinn og ekki er ég vanur að borða svo mikið. Seinna það kvöld fórum við xyza og sara á 16 ára ball í sjallanum mð palla og get ég ekki sagt að það hafi verið voða gaman. En ég var með flottustu stelpuni þarna inni ;)

Helv%/($ pöddur komnar á stjá. Mætti einni feitri könguló í vinnuni í dag þegar ég varð að færa bretti með hveiti á, get sagt að mér brá pínu =)

Nenni ekki að blogga meira, þarf á klósettið.

Lagið: Panic! At The Disco - Lying Is The Most Fun A Girl Can Have Without Taking Her Clothes Off


» 3 hafa sagt sína skoðun

10.04.2007 02:14:51 / hlynurhot

páskafrí

Jæja þá er maður að fara að vinna eftir páskafríið á morgun. eða reyndar á eftir þar sem klukkan er rúmlega 2 og minns getur bara ekki sofnað. Kanski útaf því að maður er búinn að vera heima sofandi í allan dag? gæti verið.

Allavegana þá ætla ég að reyna að sofna núna, blogga kanski meira á morgun.

Lagið: Fedde Le Grand - Creeps ( Getting jiggy with it=D )


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.03.2007 21:17:33 / hlynurhot

Þreyttur

Kominn með nóg.. er bara þreyttur og langar að sofna og vakna 2010 kanski..

Dauðlangar að gera eitthvað en er ekki viss hvað.

Ég er allavegana að pæla í að hætta með þessa síðu.. Takk

Lagið: Alice In Chains - Rooster


» 6 hafa sagt sína skoðun

16.03.2007 18:46:37 / hlynurhot

My night

heyrðu gaman hjá mér í gær.

Fór á spítalann með geðveikan magaverk og viti menn, ég var lagður inn og þurfti að vera þar í nótt þar sem ég mátti ekki borða né drekka í 24 klst rúmlega, var þó með næringu í æð allann tímann og fékk verkjalyf sem hefðu getað svæft nashyrnig. Vaknaði samt 2svar í nótt með feitann verk. Læknarnir fundu ekkert að mér eftir röngten, sónar, pissu og blóðtest og eitthvað fleira. Fékk síðan mat og mér var hleypt út. Takk amma, mamma, pabbi, mæja, sæsa =* og þið sem komuð í heimsókn og höfðuð áhyggjur af mér. Gaman hjá mörtu sem hringdi í mig klukkan korter yfir 4 í nótt á meðan ég var á spítalanum að reyna að redda sér fari uppí búð ;) Vona að það hefði verið gaman og að þú hafir náð að redda þér fari í búðina marta mín =)

Er heima hjá mér bara og er þokkalega þreyttur í maganum =S

Lagið: Clawfinger - God is dead

P.s. Xyza drullaðu þér til mín mig vantar þig hjá mér.. =(


» 2 hafa sagt sína skoðun

10.03.2007 22:55:36 / hlynurhot

Story

Ég ætla að segja ykkur sögu af mér og einni stelpu..

Einu sinni var stelpa sem ég varð yfir mig ástfanginn af, við gerðum allt saman og reyndum að vera eins mikið saman og við gátum. Við áttum helling af lögum saman og helling af einkahúmor sem mér fannst og satt að segja finnst enþá svoltið asnalegur en þetta snerti mig samt því þetta gerðist með henni og á svona mómentum sem ég veit að ég á aldrei eftir að gleyma. Svo því lengra sem við vorum saman og meira sem við tengdumst því meira fórum við að rífast og varð þetta þannig að við vorum að hætta saman, byrja saman, hætta saman, byrja saman og svo framvegis. Samt einvhernvegin var þessi stelpa alltaf mér ofarlega í huga og þegar við fluttum saman suður og hættum saman þar þá flutti ég aftur norður. Þótt ég viðurkenndi það aldrei eða allavegana sjaldan þá hugsaði ég oft um hana og Bjarni kallinn minn veit það því ég talaði við hann um þetta. Svo hitti ég stelpuna aftur mánuðum seinna og við enduðum með að byrja aftur saman og erum búin að vera að hætta saman, byrja saman, hætta saman, byrja saman o.s.fr. síðan þá. Get ekki sagt að það sé auðvelt því þessi stelpa á stórann hlut í hjartanu mínu, hlutabréf sem hún fékk gefins þegar ég varð ástfanginn af henni.. Við rífumst mikið og öskrum marga ljóta hluti á hvort annað en ég veit að ég mundi hrynja aftur í sama far af rugli ef hún mundi fara. Ég veit satt að segja ekki hvert ég er að fara með þessa sögu en ég verð að létta þessu af mér.. Ég er búinn að reyna með mis góðum árangri að laga þessa galla sem ég tileinkaði mér meðan hún bjó fyrir sunnan og við vorum ekki saman. Ég elska þessa stelpu enþá en get ekki sýnt það nógu vel svo hún trúi því þegar ég segi henni það. Ég reyni oft að særa hana til að fá tilfingar frá henni en það er rangt og endar aldrei vel. Hún er enþá hafmeyjan mín (einkahúmor) og vona að ég sé enþá geimveran hennar (meira einkahúmor). Ég sakna þess að geta hlegið með henni og verið asnalegur með henni og að okkur líði vel saman. Ég hef gert margt til að særa hana, sem ég sé eftir, og vona að hún sjái það í hjarta sér að fyrirgefa mér það þó það gleymist örugglega ekki. Ég veit að ég er ekki fullkominn þótt mamma haldi öðru fram en ég vona að ég sé nógu góður til að vera í framtiðinni þinni

Ég elska þig =*

Ef þið fattið ekki hver þetta er þá get ég sagt ykkur að hún heitir Xyza.

Lagið: The Fray - Look after you (til xyzu minnar =*)


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.02.2007 20:01:10 / hlynurhot

Peanuts

Dagurinn minn er öskudagur.. Fattaði það í dag, ég meina þetta er um tónlist og nammi. Bara bæta áfengi þarna inní og það er perfect =) 

Kominn á þátt 15 í heroes seríuni og er að skjálfa mig hlakkar til að sjá númer 16.. var að sjá svona teaser og get ég sagt að hann verður góður.

Hjálp.. Bjarni mig vantar þig til landsins, hingað til mín og tala við mig. Ég er alveg að brotna það er svoltið að þjaka mig og mig vantar að heyra í þér almennilega og tala við þig.

Lagið: Eric Clapton - Wonderfull Tonight

Ps. Er ekki einhver til í að stofna félagið; Bitrir menn! með mér? bara pæla =)


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 5